Samkaup eru útbreiddasta verslunarkeðja landsins og dreifa vörum til fleiri staða en nokkurt annað fyrirtæki. Samkaup samanstanda af Nettó, Kjörbúðinni, Krambúðinni og Iceland og hjá fyrirtækinu starfa 1.400 manns í 65 verslunum og stoðþjónustu.
Jafnrétti á vinnustað og jafnrétti í samfélaginu hefur verið sérstakt áhersluverkefni hjá Samkaupum síðustu ár. Félagið hefur sett sér skýra stefnu í jafnréttismálum sem er órjúfanlegur hluti af heildarstefnu félagsins.
„Haustið 2021 lögðum við af stað í vegferð sem kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið. Við upphaf þessa átaks voru gerðir samstarfssamningar við þrenn samtök sem starfa í þágu hópa fólks sem starfa hjá Samkaupum og verður lögð áhersla á þá í þessari fyrstu uppfærslu félagsins á jafnréttisstefnu sinni,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa.
Samstarfssamningarnir sem voru undirritaðir voru við Samtökin ’78, Þroskahjálp og Mirru, rannsókna- og fræðslusetur fyrir erlent starfsfólk.
„Framkvæmdastjórn og stjórn Samkaupa hefur skuldbundið sig í allri stefnumótun til að stuðla að auknu jafnrétti og samþykkti jafnréttisáætlun árið 2020 sem inniheldur aðgerðaáætlun til ársins 2022. Hjá Samkaupum er lögð áhersla á að allt starfsfólk sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum. Starfsfólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, fötlunar, skoðana eða annarra þátta.
Gildi Samkaupa – kaupmennska, áræðni, sveigjanleiki og samvinna – eru hornsteinar í starfi félagsins og leiðarljós í að gera Samkaup að eftirsóttum vinnustað þar sem jafnrétti og jafnræði allra er virt og þar sem allir einstaklingar hafa jöfn tækifæri á öllum sviðum, því lykilatriði í velgengni Samkaupa felst auðvitað í starfsfólki fyrirtækisins,“ segir Gunnur Líf.
Allir fá að njóta sín sem best
Samkaup leggja áherslu á fjölmenningu innan raða síns starfsfólks og allir hafa jafnan rétt og tækifæri, óháð uppruna.
„Við leggjum áherslu á að nýta styrkleika fólks, óháð þeim takmörkunum sem fólki kunna að vera sett, og þannig að hæfileikar, kraftar og færni allra starfsmanna fyrirtækisins njóti sín sem best. Með jafnréttisáætlun og stefnu Samkaupa í jafnréttismálum hafa stjórnendur skuldbundið sig til að leggja áherslu á málaflokkinn þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu,“ upplýsir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Það sé Samkaupum mikilvægt að stefnan sé ekki einungis skjal, unnið af stjórnendum og sem starfsfólk tengir ekki við.
„Þess vegna hefur mikil vinna farið fram á meðal alls starfsfólks við mótun stefnunnar og er henni haldið á lofti með reglulegum hætti þegar starfsfólk kemur saman, en einnig með óreglubundnum en þó stöðugum hætti á samskiptamiðlum eins og Workplace,“ greinir Heiður frá.
„Ásamt því að vinna jafnréttisáætlun með það að markmiði að efla hag starfsfólks og starfsánægju, er einlæg von Samkaupa að þessi metnaðarfulla jafnréttisáætlun veki eftirtekt úti í samfélaginu og hvetji önnur fyrirtæki til að feta sömu leið í jafnréttismálum. Þannig vonast Samkaup til að verða jákvætt afl út í allt okkar samfélag og jafnvel breyta heiminum í vissum skilningi.“
Hlúð að erlendu starfsfólki
Samkaup hlutu nýverið Hvatningarverðlaun jafnréttis, en að þeim standa Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands. Fyrirtækið hlaut verðlaunin í tveimur af þremur flokkum: fjölmenningu og fötlun.
„Um 25 prósent starfsfólks Samkaupa eru af erlendum uppruna og gegna ýmiss konar störfum innan fyrirtækisins, jafnt afgreiðslustörfum, vaktstjórastörfum, umsjónarstörfum sem og verslunarstjórastörfum,“ upplýsir Gunnur Líf.
Þá hafa Samkaup haft milligöngu um að tryggja erlendu starfsfólki sínu varanleg dvalarleyfi á Íslandi og veita ávallt aðstoð við ýmiss konar opinbera ferla sem fólk af erlendum uppruna þarf að fara í gegnum til þess að mega búa og starfa á Íslandi, sé þess þörf.
„Samkaup bjóða öllu erlendu starfsfólki sínu íslenskukennslu, á rafrænum fræðsluvettvangi fyrirtækisins, í fjarkennslu eða staðkennslu. Erlent starfsfólk getur einnig fundið sér íslenskunámskeið sem því hentar best og Samkaup endurgreiða kostnað þeirra að fullu,“ segir Gunnur Líf.
Samstarfssamningur Samkaupa og Mirru rannsókna- og fræðsluseturs hljóðar upp á fræðslu til alls starfsfólks Samkaupa og þar er ekki síður lögð áhersla á fræðslu til íslensks starfsfólks.
„Þannig snýr fræðslan að því að gera fólk betur í stakk búið til að taka á móti erlendu starfsfólki, bjóða það velkomið í starfsmannahópinn og sjá til þess að inngilding þess verði sem mest og best. Fræðslan er sniðin að stjórnendum jafnt sem almennu starfsfólki. Haldnir eru stjórnendadagar þar sem farið er yfir þessi málefni og fræðslan fest í sessi hjá stjórnendum. Einnig eru haldnar vinnustofur í öllum verslunum fyrirtækisins, þar sem allt starfsfólkið tekur þátt, og þar er einnig opnað á þessa umræðu og fræðsla veitt.“
Eftirsóknarverður vinnustaður
Hjá Samkaupum starfar fólk með skerta starfsgetu á allmörgum starfsstöðvum og margt hefur starfað þar í fjölmörg ár.
„Samstarfssamningur Samkaupa og Þroskahjálpar snýr að fræðslu til alls starfsfólks Samkaupa og aðallega því að gera starfsfólk betur í stakk búið til að taka á móti starfsfólki með skerta starfsgetu, að aðlögun þeirra að vinnustaðnum verði sem best og að hver og einn fái stuðning sem þarf til að eiga farsælan feril,“ útskýrir Heiður Björk.
Fræðslan er sniðin að stjórnendum fyrirtækisins jafnt sem almennu starfsfólki.
„Einnig eru haldnar vinnustofur í öllum verslunum fyrirtækisins, þar sem allt starfsfólkið tekur þátt, og þar er einnig opnað á þessa umræðu og fræðslan veitt. Einnig kemur Þroskahjálp að fræðslu handa starfsfólki með skerta starfsgetu sem hefur störf hjá Samkaupum, veitir því aðstoð sem þarf til að blómstra í starfi og getur þannig betur undirbúið stjórnendur með stuðning og aðlögun sem starfsmaðurinn þarfnast.
Samkaup hafa sett sér markmið um að í hverri skipulagseiningu innan Samkaupa séu starfsmenn með skerta starfsgetu, þannig að á hverjum vinnustað sé að minnsta kosti einn starfsmaður sem flokkast undir atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu,“ segir Heiður.
„Meginmarkmið Samkaupa er að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæða og heilbrigða menningu, jafnrétti og opin samskipti, sterka liðsheild þvert á vörumerki félagsins, tækifæri starfsfólks til aukinnar menntunar, fræðslu og starfsþróunar og góða upplýsingamiðlun. Fyrirtækjamenning Samkaupa stuðlar að því að allir starfsmenn fái tækifæri til að þroskast, bæði persónulega og í starfi.“
Nýjar hugmyndir fæðast
Aðalmarkmið Samkaupa með nýrri og útvíkkaðri jafnréttisáætlun er að opna umræðu og fræða starfsfólk sitt til þess að lágmarka hættu á fordómum, með það að markmiði að menning Samkaupa endurspegli fordómaleysi og frelsi allra einstaklinga til að vera þeir sjálfir á vinnustaðnum.
„Samkaup senda út mannauðsmælingar annan hvern mánuð til alls starfsfólks. Í mælingu sem fór fram í september 2021 var starfsfólk beðið um að taka afstöðu til eftirfarandi fullyrðingar: „Hjá Samkaupum eru allir starfsmenn jafnir án tillits til stéttar, trúar, kynferðis, kynhneigðar, þjóðernis, fötlunar eða aldurs.“
Niðurstöður sýndu að 48 prósent þeirra sem svöruðu voru mjög sammála, 38 prósent sammála en 10 prósent svarenda voru hlutlaus, 3 prósent ósammála og eitt prósent mjög ósammála. Þá mælir Samkaup jafnrétti með mismunandi spurningum þrisvar til fjórum sinnum á ári,“ upplýsir Gunnur Líf.
Fyrir utan ávinning sem fæst af fjölmenningu fyrir starfsfólkið og samfélagið í heild, sé stefnan mikilvæg þegar litið er til rekstrarlegs ávinnings Samkaupa.
„Það að vera með hóp af fólki með ólíkan bakgrunn og af ólíkum uppruna ýtir undir nýsköpun og þegar raddir ólíkra aðila fá að heyrast innan fyrirtækisins koma fram fjölbreyttari sjónarmið. Þegar fjölbreytni í starfsmannahópi er markmið, eru Samkaup þess fullviss að ávinningurinn er langtímaárangur þar sem ólíkt starfsfólk kemur með nýjar hugmyndir, ferla og stefnur. Með þessu eykst skilvirkni innan starfa fyrirtækisins, sem skilar sér í auknum hagnaði til lengri tíma litið, og ánægja starfsfólks eykst, sem skilar sér í betri upplifun viðskiptavina af þjónustu, sem aftur skilar aukinni sölu,“ segir Gunnur Líf.
Hamingjan í fyrirrúmi
Gunnur Líf er spurð hvort hamingjan búi í Samkaupum og svarar:
„Hamingja, gleði og vinátta eiga heima á öllum vígstöðvum samfélagsins og ég tel það vera forsendu þess að fólki líði vel. Ef við hjá Samkaupum sköpum menningu þar sem ríkir jafnrétti og fordómaleysi, þá stígum við skref í rétta átt að því að skapa gott samfélag þar sem hamingja fólks er í fyrirrúmi.“
Hún segir margt áhugavert hafa komið fram í vegferð Samkaupa.
„Við erum alltaf að læra, hvernig við getum bætt okkur á öllum sviðum og það að setja athyglina á jafnréttismálin aðstoðar okkur í að gera betur. Ég get með sanni sagt að liðsheild, orka og þrautseigja einkenni starfsfólk Samkaupa. Fólkið í Samkaupaliðinu stendur saman og er ávallt tilbúið að leggja sitt af mörkum til að mæta viðskiptavinum á sem bestan máta. Samkaup eru eitt öflugasta fyrirtækið á Íslandi, með einstakan hóp starfsmanna sem í sameiningu getur allt. Þetta er einstakt fyrirtæki sem býr yfir fjölbreyttum hópi af framúrskarandi fólki. Mannauðurinn er svo sannarlega stærsta auðlind fyrirtækisins.“
Sjá nánar á samkaup.is.
Leyfi fólki að vaxa til framtíðar
Gunnur Líf Gunnarsdóttir er 34 ára Garðbæingur, eiginkona og móðir tveggja barna, en bráðum þriggja. Hún er menntaður kennari, hefur einnig lokið MBA-gráðu, og er með óbilandi metnað fyrir vexti fólks og fyrirtækja. Gunnur Líf hefur gaman af hverskyns breytingum og fær um 1000 frábærar hugmyndir á dag. Hún er framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa.
Hverjir voru æskudraumarnir, Gunnur Líf? Sástu fyrir þér að þú ynnir við mannauð stórfyrirtækis?
„Já og nei. Æskudraumurinn var að verða bankastjóri, bæjarstjóri eða bara forseti – í raun að stjórna einhverju, svo ætli það sé ekki aðeins tengt. Ég hef frá upphafi tekið að mér leiðtogahlutverkið, hvort sem það var í skátunum hér áður fyrr eða í vinahópnum. Ég hef alltaf haft gaman af samskiptum við fólk, svo það að vinna við mannauð í stórfyrirtæki sameinar þetta tvennt sem ég brenn fyrir.“
Hvenær hófstu störf hjá Samkaupum? Er starfið þitt skemmtilegt? Krefjandi? Gefandi?
„Ég hef starfað hjá Samkaupum síðan 2018. Starfið er að mínu mati eitt það skemmtilegasta og hefur stundum verið gert grín af því í mínum innsta hring að starfið sé svo miklu meira en bara starf, heldur mitt helsta áhugamál. Það sem gerir vinnuna svo skemmtilega er að starfið er krefjandi en um leið gefandi. Ég er í samskiptum við fjölbreyttan hóp fólks allan daginn, fæ tækifæri til að þróa hugmyndir áfram og leiða verkefni sem ég veit að hafa áhrif; ekki bara á mitt fyrirtæki, heldur samfélagið allt.“
Í hverju felast þín daglegu störf hjá Samkaupum?
„Dagarnir eru misjafnir eins og þeir eru margir. Það eru ávallt spennandi verkefni sem þarf að vinna að, hvort sem það eru umbótarverkefni eða þróunarverkefni. Ég er mikið á ferðinni að hitta fólkið okkar, heyra hvað það hefur að segja, setjast niður með því og vinna með því í áskorunum sem það fæst við alla daga. Ég tel mig vera stuðning við aðra stjórnendur og því fer mikið af tíma mínum í að hvetja og styðja við hin ýmsu verkefni. Þessa dagana er ég að undirbúa vinnustofur með verslunum, þar sem farið er og sest niður með starfsfólki, rætt við það um tækifærin framundan, hvað sé vel gert og hvað það vill sjá verða betra. Þetta er frábær vettvangur til að hlusta á starfsmenn og mörg verkefni sem koma út úr þessum samtölum sem við stjórnendur setjum svo í farveg.“
Ertu meðvituð um að vera góð fyrirmynd fyrir aðrar konur í atvinnurekstri?
„Já, það skiptir mig máli að geta verið góð fyrirmynd fyrir aðrar konur.“
Hvernig stjórnandi ertu?
„Ég tel mig vera sanngjarnan stjórnanda sem er virkilega annt um fólkið sitt. Ég treysti fólki vel fyrir verkefnum og leyfi því að leiða þau áfram. Ég er jákvæð og bjartsýn að eðlisfari, sem ég vona að smitast áfram. Ég reyni að styðja vel við fólk og leyfa því að vaxa til framtíðar.“
Hver er þín framtíðarsýn í starfi og hvaða ósk áttu konum til handa?
„Mín framtíðarsýn er að geta haldið áfram að hafa áhrif, hvort sem það er innan Samkaupa eða annarsstaðar. Ég hef metnað til að leiða áfram öflug teymi fólks, því ég tel það vera það mikilvægasta sem við getum gert – að leiða saman fjölbreytt teymi því þannig náum við að hámarka árangur. Minn metnaður liggur í að vera í efstu stöðu innan fyrirtækis – þegar sá tími kemur í framtíðinni. Ég á þá ósk, að konur láti ekkert stoppa sig og haldi ótrauðar áfram; að þær nái að framfylgja öllum sínum draumum.“
Dreymdi um að verða bankastjóri
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa. Hún ólst upp suður í Garði en hefur síðastliðin níu ár búið í Hafnarfirði. Hún er viðskiptafræðingur að mennt, með próf í verðbréfaviðskiptum og MBA-gráðu. Heiður hefur gaman af því að læra og á örugglega eftir að bæta við sig einni háskólagráðu enn, þegar börnin verða orðin eldri. Hún hefur ástríðu fyrir því að gera góða hluti betri, búa til góð teymi úr hópi fólks og er óhrædd við að fara eigin leiðir.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst orðin stór, Heiður Björk?
„Áhugi minn á stjórnun kviknaði snemma í barnæsku. Þá vann amma mín í banka og þótti mér fátt skemmtilegra en að kíkja í heimsókn til hennar í vinnuna og fylgjast með starfseminni. Þar vaknaði draumur um verða bankastjóri þegar ég yrði stór, sem síðar varð drifkraftur í öllu námi og störfum sem ég hef sótt í, alveg síðan ég hóf nám í Verzló og ferðaðist daglega með rútu á milli Garðs og Reykjavíkur. Því þarf ekki að koma neinum á óvart að fyrsta alvöru starfið mitt var í banka og vann ég um áratug í Arion banka. Það eru því engar tilviljanir, þegar ég hugsa til baka. Ég var alltaf á þessari leið.“
Hvenær hófstu störf hjá Samkaupum og uppfyllir starfið vonir þínar og þrár?
„Ég hóf störf hjá Samkaupum snemma árs 2020. Ég er í draumastarfinu sem er í senn mjög krefjandi og fjölbreytt. Við skilgreinum fjármálasviðið sem stoðþjónustu fyrir önnur svið félagsins og því er ég í miklum samskiptum og verkefnum með fjölbreyttum hópi starfsfólks sem er alltaf mjög skemmtilegt.“
Í hverju felast þín daglegu störf og hverjir eru töfrarnir við starfið?
„Ég ber ábyrgð á fjármálum og upplýsingatækni félagsins, sem er viðamikið verkefni. Við rekum 65 verslanir og veltan er um 40 milljarðar á ári, svo það er í mörg horn að líta. Síðan ég hóf störf hefur fjármálasviðið verið á mikilli vegferð nútímavæðingar og höfum við byggt hægt og rólega ofan á þann góða grunn sem var til staðar.
Að mínu mati ber fjármálasvið framtíðarinnar ekki eingöngu ábyrgð á bókhaldi, gagnavörslu og fjárreiðum, heldur er hlutverk þess líka stefnumiðaður stuðningur við aðra stjórnendur og því náum við til dæmis með því að vera með gott innsæi í reksturinn ásamt kvikri áætlanagerð og eftirliti. Þannig höfum við einmitt verið að innleiða gagnadrifinn rekstur til að tryggja öllu starfsfólki aðgengi að upplýsingum sem styðja við daglegar ákvarðanir. Alla daga er því líf og fjör, en töfrarnir við starfið eru tvímælalaust fólkið. Það er ekkert meira gefandi en að hafa áhrif á fólk og sjá það blómstra í starfi.“
Ertu meðvituð um að vera góð fyrirmynd fyrir aðrar konur í atvinnurekstri?
Já, reyni mitt besta í þeim efnum. Ég vonast til að mín vegferð sé öðrum konum hvatning og er alltaf tilbúin að miðla minni reynslu. Á sama hátt er ég dugleg að sækja í reynslubanka annarra kvenna og þar kemur tengslanet FKA sterkt inn.
Að mínu mati eru ekki nógu margar konur í forsvari fyrir fyrirtækin sem þjónusta fjármálasvið Samkaupa enda eru bæði fjármála- og tæknigeirarnir oft frekar karllægir. Ég átta mig á að ég hef ákveðna ábyrgð hér og er farin að spyrja meira út í samsetningu teyma þegar við kaupum þjónustu af nýjum aðilum. Ég hef jafnvel lagt fram kröfu um að fá konur inn í teymi og það hefur virkað. Ég geri því allt sem ég get gert til að aðrar konur fái framgöngu, en auðvitað ætti ekki að þurfa að fara þessa leið.“
Hvernig stjórnandi ertu?
„Styrkleikar mínir sem stjórnandi liggja meðal annars í því að ég hef góða yfirsýn og er lausnamiðuð. Ég veiti starfsfólki umboð til athafna og stuðning til að ná árangri í starfi. Ég hvet til umbótahugsunar og því eru oft margar hugmyndir og verkefni í gangi í kringum mig. Ég reyni að laða að mér fólk sem deilir minni framtíðarsýn fyrir fjármálasviðið og tengi hana við dagleg verkefni þannig að allir séu þátttakendur í vegferðinni.“
Hver er þín framtíðarsýn og hvaða ósk áttu konum til handa?
„Framtíðin er óráðin en auðvitað er stefnan tekin áfram og upp á við. Mín persónulega vegferð er vonandi rétt að byrja og ég hef metnað til að ná enn lengra. Ósk mín konum til handa er að við séum óhræddar við að nýta rödd okkar og höfum trú á krafti okkar og getu til að hafa áhrif.“
Þessi umfjöllun birtist fyrst í sérblaði Félags kvenna í atvinnurekstri sem fylgdi Fréttablaðinu fimmtudaginn 20. janúar 2022.