Nettó opnar í þriggja mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli

Í síðustu viku var tekin fyrsta skóflustunga fyrir byggingu Nettó á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Verslunin verður 1400 fermetrar og öll hin glæsilegasta en verslunin verður ein af svokölluðum grænum verslunum Nettó. Aðaltorg er nýtt verslunar- og þjónustutorg staðsett í þriggja mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli og mun auðvelda aðgengi ferðalanga að verslun og þjónustu á leið til eða frá landinu, jafnframt því að vera staðsett miðsvæðis gagnvart íbúum bæjarfélaganna á Suðurnesjum.

„Það er mikill heiður fyrir okkur að fá að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem á sér stað á svæðinu. Verslunin er ein af þeim sem við erum að byggja frá grunni í samstarfi við aðstandendur Aðaltorgs og við erum gífurlega spennt fyrir því að fá að taka þátt í ferlinu frá upphafi. Á sama tíma verður frábært að geta boðið upp á Nettó verslun steinsnar frá Keflavíkurflugvelli og ég hef fulla trú á að hún muni stórbæta aðgengi að verslun á svæðinu,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs hjá Samkaupum.

„Nýja verslunin verður ein af grænu verslunum okkar en það þýðir að allt sorp verður flokkað, öll tæki sem þar má finna verða keyrð á umhverfisvænum orkumiðli, LED lýsing er í versluninni og allir frystar og megnið af kælum eru lokaðir.“

Aðaltorg er eitt af áherslusvæðum K64. Þar er unnið með skipulagsmál nærsvæðis Keflavíkurflugvallar og byggðarlaganna á Suðurnesjum. Keflavíkurflugvöllur er vel tengdur alþjóðaflugvöllur og með vönduðu skipulagi getur hann orðið drifkraftur fyrir efnahagslega, umhverfislega og samfélagslega sjálfbært svæði. Staðsetningin á milli Evrópu og Ameríku, nálægðin við höfuðborgarsvæðið, sveitarfélögin við völlinn og sérstaða Íslands eru þættir sem sérstaklega verður horft til við þróun Aðaltorgs.

Nettó er í eigu Samkaupa og eru verslanir samstæðunnar orðnar rúmlega 60 talsins. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin og Krambúðin.