Samkaup hefur hafið sölu á lausasölulyfjum í þremur verslunum félagsins. Verslanirnar sem um ræðir eru Krambúðin á Flúðum og Laugarvatni, og Kjörbúðin á Fáskrúðsfirði.
„Lausasölulyfin eru nýjasta viðbótin í vöruúrvali verslana á þessum svæðum og kærkomin viðbót fyrir íbúa, sumarbústaðaeigendur og ferðamenn enda engin apótek í þessum þéttbýliskjörnum,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, í fréttatilkynningu frá Samkaupum.
Lausasölulyfin sem boðið verður upp á eru meðal annars Panodil-stílar, Panodil hot, Panodil-freyðitöflur, Íbúfen, Paratabs, Lórítin, míxtúra, Histasín og Nicotinell. Sala á lyfjunum er háð undanþágu frá kröfu um lyfsöluleyfi til sölu tiltekinna lausasölulyfja í almennri verslun.
„Sala á lausasölulyfjum í þessum þremur verslunum er fyrsta skrefið í að veita viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu. Það er í skoðun hjá okkur að opna fyrir sölu á lausasölulyfjum í öðrum verslunum enda teljum við það samfélagslega skyldu okkar að bjóða viðskiptavinum upp á sem fjölbreyttasta vöruúrvalið, ekki síst á þeim stöðum þar sem önnur þjónusta er af skornum skammti,“ segir Gunnar Egill.
Samkaup reka yfir 60 verslanir um land allt undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar, Iceland og Samkaupa.